Samtök Fullveldissinna

L – listinn er bandalag frjálsra frambjóðenda sem vilja efla lýðræði í landinu og vinna með því gegn ríkjandi flokksræði. Við teljum að besta leiðin að þessu marki sé að koma á beinu sambandi milli kjósenda og frambjóðenda. Enginn flokkur stendur því að baki framboði þessu heldur einungis frambjóðendur sem bjóða fram krafta sína í þágu lands og þjóðar. Frjálsir stjórnmálamenn geta látið verkin tala í stað þess að sitja fastir í fari flokksræðis.


Frambjóðendur L – listans telja að fullveldi landsins sé forsenda fyrir endurreisn efnahags og þess að hér geti þrifist lýðræði. Vald sem flutt hefur verið út fyrir landsteinana verður ekki innan seilingar í baráttu íslenskra kjósenda fyrir lýðræði. Auðlindir sem afhentar verða milljónaþjóðum verða íslenskri þjóð að litlu gagni. Því höfnum við alfarið öllum hugmyndum um ESB aðild.


Sem lýðræðissinnar eru frambjóðendur L – listans talsmenn hófsamra borgaralegra gilda og hafna öfgum hvort sem er frá hægri eða vinstri.


Frjálsir stjórnmálamenn – beint fulltrúalýðræði

Stjórnskipan Íslands gerir ráð fyrir að Alþingismenn séu einungis bundnir samvisku sinni og eiðstaf sínum gagnvart Stjórnarskrá. Reyndin er þó sú að þingmenn eru háðir stjórnmálaflokkum og sækja í daglegu starfi umboð sitt til flokksskrifstofu fremur en beint til kjósenda.


Skýrt dæmi um þá brenglun sem orðin er í stjórnskipaninni er þegar flokkar telja sig geta breytt umboði alþingismanna með einfaldri atkvæðagreiðslu eins og reyndin var í umræðu um stefnubreytingu bæði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Evrópumálum. Þar með er staðfest fyrir almenningi að kjósendur sitja ekki við sama borð heldur skiptast í tvær stéttir, flokksbundna kjósendur með mikil yfirráð yfir þingmönnum og flokkslausa kjósendur sem eru áhrifslausir milli kosninga.


L – listinn hafnar þessum tvískinnungi og telur að það kerfi sem hér hefur þróast sé andstætt stjórnskipan landsins enda koma stjórnmálaflokkar hvergi við sögu í Stjórnarskrá lýðveldisins. Í skjóli flokksræðis hefur einnig þrifist í landinu margskonar spilling og samspil stjórnmála- og viðskipta.


Flokksvaldið hefur einnig dregið stórlega úr möguleikum stjórnmálamanna til að láta verkin tala eins og glögglega hefur komið fram í yfirstandandi erfiðleikum þar sem stjórnvöld sitja að mestu aðgerðalaus í stað þess að ráðast til atlögu við vandann.


Endurreisn í frjálsu og fullvalda ríki

Frambjóðendur L – listans eru sammála um að lykilatriði í íslenskum stjórnmálum næstu ára er baráttan fyrir áframhaldandi fullveldi. Lýðræði íslenskra kjósenda verður ekki tryggt ef lagasetningavald er flutt út fyrir landsteinana.


Þá teljum við að hagsmunum Íslands sé tvímælalaust betur borgið utan ESB en innan þess og mikilvægt að standa gegn öllum tilraunum til að koma á svokölluðum aðildarviðræðum. Þá teljum  við að Alþingi geti ekki veitt ríkisstjórninni heimild til aðildarviðræðna án þess að ákvæði um fullveldi séu fyrst felld út Stjórnarskrá. Þar munum við leggja okkar lóð á vogarskálarnar gegn því að fullveldisákvæði Stjórnarskrárinnar séu afnumin og teljum að til breytinga á Stjórnarskrá eigi að kalla eftir auknum meirihluta í almennri þjóðaratkvæðagreiðslu.


Fullveldi og full yfirráð auðlinda eru lykillinn að því að vel takist til í þeirri endurreisn sem verður verkefni íslensku þjóðarinnar næsta áratuginn.


Opið og nútímalegt markaðssamfélag

L listinn leggur áherslu á að á Ísland verði byggt á opnu og blönduðu hagkerfi og samfélagi þar sem tryggt er jafnrétti allra manna. L – listinn hafnar því hverskonar öfgum í stjórnmálum hvort sem er frá hægri eða vinstri. L – listinn telur mikilvægt að Ísland opni sem mest fyrir viðskipti og samskipti við aðrar þjóðir jarðar án þess að gengið verði um of á hagsmuni innlendra atvinnuvega.

 

 

 

Þeir sem hafa áhuga á að vinna með L-listanum er bent á að senda tölvupóst á l.listinn@gmail.com

 

 

 

 

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Axel Þór Kolbeinsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband