Breytt kosningafyrirkomulag og persónukjör.

Það eru fleiri en talsmenn L-lista sem hafa gagnrýnt núverandi hugmyndir um breytingar á kosningalögum.

Karl Th. Birgisson skrifar ákall til leiðtoga Samfylkingarinnar undir yfirskriftinni "Ekki eyðileggja persónukjörið, Jóhanna" á vefsetrið Herðubreið.
Þar bendir hann t.d. á þennan stóra galla:

Miðað við núverandi hugmyndir færi prófkjör flokkanna í raun fram samhliða kosningum þar sem frambjóðendur væru ekki bara framboði fyrir sitt framboð heldur líka í beinni samkeppni við samherja sína.

Margar hugmyndir hafa verið ræddar um breytt fyrirkomulag á kosningafyrirkomulagi hjá flestum stjórnmálahreyfingum, og af landsmönnum öllum.  Við sem stöndum að L-listanum höfum mikið rætt þessi mál og ýmsar hugmyndir verið ræddar.

Ein af þessum hugmyndum er að vera í raun með tvöfalt kerfi.  Hluti þingmanna, t.d. 2/3 er kosinn af listum framboða í einu landskjördæmi, og þá mögulega útfært með með því að hver kjósandi velji 5 einstaklinga af einum lista, eða á milli lista.
Hinn 1/3 hluti þingamanna yrði kosinn í nýjum einmenningskjördæmum í beinu persónukjöri.

En það er ljóst að núverandi kerfi er ekki vilji þjóðarinnar, og ekki vilji okkar sem standa að L-listanum, en breytingar á kosningalögum rúmum mánuði fyrir kosningar getur ekki verið góð hugmynd.

Endilega skiljið eftir ykkar hugmyndir um hvernig þið viljið sjá breytingar á fyrirkomulagi kosninga.  Við viljum heyra frá þér.   Opið verður fyrir nýjar athugasemdir við þessa færslu til 23.apríl.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband