Oddvitar í Reykjavík-suður og suðurkjördæmi.

mar_mixa-03.jpgMár Wolfgang Mixa fæddist í Reykjavík 6. febrúar, 1965 og hefur búið í Hafnarfirði síðastliðin ár  Hann er giftur Kristínu Loftsdóttur, prófessor í mannfræði.  Þau eiga 3 börn.

Már hefur víðtæka reynslu í fjármálum en hann hefur starfað í meira en áratug við innlendar og erlendar fjármálastofnanir.  Meðal starfa sem hann hefur gegnt eru framkvæmdastjóri, forstöðumaður verðbréfasviðs, sjóðsstjóri, eigin viðskipti, millibankaviðskipti, uppsetningu verðbréfa- og lífeyrissjóða og samskipti við alþjóðlega aðila.  Már hefur skrifað margar greinar um fjármál sem eru aðgengilegar á www.mixa.blog.is.

Á þessu ári klárar Már meistaranám í Fjármálum við Háskóla Íslands.  Már hefur áður lokið BS námi í fjármálafræði og BA námi í heimsspeki við University of Arizona.  Hann hefur einnig hlotið löggildingu sem verðbréfamiðlari hér á landi og í Bandaríkjunum.

Már Wolfgang Mixa skipar 1. sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður.

 


kristbjorg_gisladottir0011.jpgKristbjörg Steinunn Gísladóttir fæddist á Hofsósi í Skagafirði 11. október 1963 og er uppalin þar Hún er gift Bjarna Ragnarssyni búfræðingi og eiga þau saman tvo syni og fyrir átti Bjarni dóttir. Kristbjörg lauk námi í Ritaraskólanum Mími árið 1989 og námi í Ráðgjafaskóla Íslands árið 2004.

Hún hefur unnið m.a. í fiski og á skrifstofu hjá Hraðfrystihúsinu Hofsósi. Flutti suður á Flúðir 1991, meðan hún bjó þar vann hún m.a. á skrifstofunni hjá Límtré verksmiðjunni í 9 ár. Árið 2001 flutti Kristbjörg til Selfoss þar sem hún býr enn. Vorið 2005 hóf hún störf sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi á Teigi LSH þar til hún flutti sig um set í nóvember 2006 til Krýsuvíkur þar sem hún starfar einnig sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi.

Kristbjörg Steinunn Gísladóttir skipar 1. sæti í suðurkjördæmi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér (http://l-listinn.blog.is/blog/l-listinn/entry/826098/) segir að Bjarni verði efstur í norður en Már í suður. Hér að ofan segir að Már og Kristbjörg verði bæði efst í suður enda heitir færslan oddvitar í Reykjavík suður og suðurkjördæmi.

Vanda sig!

Hilmar Hilmarsson (IP-tala skráð) 24.3.2009 kl. 19:10

2 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Már verður efsti maður í syðra-Reykjavíkurkjördæmi, en Kristbjörg í suðurkjördæmi sem nær frá Vatnsleysustrandarhrepp, um Reykjanesið og austur að Lóni.

Þetta er nokkuð skýrt í textanum.

Axel Þór Kolbeinsson, 24.3.2009 kl. 19:29

3 Smámynd: Samtök Fullveldissinna

Bandstriki bætt við í fyrirsögn til að minnka líkur á misskilningi.

Samtök Fullveldissinna, 24.3.2009 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband