3.4.2009 | 17:49
Fréttatilkynningin í fullri lengd
Fullveldissinnar draga
framboð til baka vegna ólýðræðislegra aðstæðna
L listi fullveldissinna mun ekki bjóða fram í komandi Alþingiskosningum. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi sem haldinn var í Hafnarfirði í dag, föstudaginn 3. apríl. Hreyfingin mun áfram starfa sem frjáls framboðs- og sjálfstæðishreyfing.
L-listi fullveldissinna treystir sér ekki til að uppfylla þau skilyrði sem ólýðræðislegar aðstæður skapa nýjum framboðum á þessum stutta tíma sem liðinn er frá því ákvörðun var tekin um kosningar. Þaulseta Alþingis fram undir kosningar með allri þeirri athygli sem störf þess fá skipta hér miklu.
Annað sem skiptir máli er sá múr sem 5% lágmark setur nýjum framboðum og krafa um 126 frambjóðendur í sex kjördæmum. Þá skapar opinber fjárstuðningur ríkisins til eldri stjórnmálahreyfinga mikinn aðstöðumun framboða. Síðast en ekki síst vegur þungt hvernig fjölmiðlar hafa hundsað óskir okkar um jafnræði í umfjöllun.
Þegar boðað var til framboðs L-listans var því spáð að bæði Sjálfstæðisflokkur og Vinstri hreyfingin grænt framboð myndu kúvenda í afstöðu til aðildar Íslands að ESB.
Niðurstöður þessara flokka urðu aftur á móti að halda í fyrri stefnur um andstöðu við aðild. Í því er fólginn mikill varnarsigur eftir stórsókn ESB sinna á nýliðnu ári. Svo virðist sem aðildarsinnum hafi um sinn mistekist að nýta sér ótta almennings í fjármálahruninu til að grafa undan fullveldi Íslands. Í bæði Sjálfstæðisflokki og VG var þó gefinn óþarflega mikill slaki gagnvart þeim þjóðhættulegu hugmyndum sem nú ríða yfir að Ísland skuli setjast á kosningavagn Brusselvaldsins.
L-listi fullveldissinna varar við allri tilslökun í þessu máli og hvetur stuðningsmenn sína til að kjósa ekki þau framboð sem hafa beinar aðildarviðræður að ESB á stefnuskrá sinni.
L-listi fullveldissinna þakkar fjölmörgum stuðningsmönnum framboðsins ómælda elju og baráttu og minnir á að barátta smáþjóðar fyrir frelsi sínu og fullveldi er ævarandi.
Þórhallur Heimisson
Kristbjörg Gísladóttir
Már Wolfgang Mixa
Sigurbjörn Svavarsson
Bjarni Harðarson
Guðrún Guðmundsdóttir
Hættir við þingframboð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Facebook
Athugasemdir
ER það á hreinu að ekki sé hægt að endurreisa þetta framboð?
Friðrik Björgvinsson, 9.4.2009 kl. 22:14
Finnst eftirsjá að framboði L listans, þar sem það hefði hjálpað til við að skýra línurnar í afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsins.
Hefði ekki kosið ykkur sjálf, þar sem það er bjargföst trú mín að þjóðin sé skár komin í rassvasabókhaldi möppudýrs í Brussel, en í kviksyndinu, sem hennar eigin ráðamenn hafa komið henni í.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 10.4.2009 kl. 14:07
Friðrik: Ef það er hægt að ná saman 126 frambjóðendum og 2520 meðmælendum fyrir 12:00 á miðvikudaginn þá væri hægt að bjóða fram. Það er ólíklegt að við náum því, en starfið er rétt að byrja. Við höfum í huga á að starfa áfram, og munum tilkynna það þegar fram líða stundir.
Hildur: Takk fyrir þau orð. Það er skömm að við séum ekki sammála í ESB málunum því það er alltaf pláss fyrir gott fólk hjá L-listanum.
Axel Þór Kolbeinsson, 13.4.2009 kl. 19:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.